Umboðsmenn
 Hef ég unnið
 Kaupa miða

 

 

 SÍBS blaðið

 

 SÍBS
 Síðumúla 6
 108 Reykjavík
 Sími: 5522150
 Netfang: sibs@sibs.is

Múlabær er dagvistun aldraðra og öryrkja að Ármúla 34 í Reykjavík. Markmið Múlabæjar er að rjúfa félagslega einangrun aldraðra og öryrkja í heimahúsum, hvetja þá til sjálfsbjargar og styrkja þá til að lifa heilbrigðu og farsælu lífi á heimaslóðum. Starfsemi Múlabæjar miðar að því að aldraðir og öryrkjar geti sem lengst búið í heimahúsum í stað þess að dvelja á stofnunum. Reynt er að draga úr ótímabærum innlögnum á sjúkrastofnanir, greiða fyrir útskrift sjúklinga af sjúkrastofnunum og létta á dagspítaladeildum.

 

Skjólstæðingar Múlabæjar  eru aldraðir og öryrkjar sem halda sjálfstætt heimili, eða eru í tengslum við vandafólk, en eiga þó í erfiðleikum með að annast sig að fullu. Á Múlabæ er veitt einstaklingsbundin þjálfun sem miðar að því að viðhalda þeirri getu sem fyrir er. Einnig er í boði hópleikfimi, heilsufarslegt eftirlit, sem er í umsjón hjúkrunarfræðinga, og aðstoð við böðun. Framreiddar eru þrjár máltíðir dag hvern og hægt er að fá hársnyrtingu og fótaaðgerðir. Í boði er flutningsþjónusta fyrir þá sem þess óska og er greiðsla fyrir hana 600 krónur báðar leiðir. Í Múlabæ eru vinnustofur og þar er rekin verslun.

 

Múlabær tók til starfa 6. janúar árið 1983. Rekstraraðilar eru: SÍBS, Reykjavíkurdeild RKÍ og Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Saman skipa fulltrúar þessara aðila stjórn yfir heimilið. Í byrjun var starfsemin skilgreind sem dagvistun á félagslegum grunni. En í áranna rás hefur breyting orðið þar á og nú er þjónustan ekki einungis miðuð við félagslegar aðstæður heldur er heilsufar hugsanlegra skjólstæðinga, bæði líkamlegt og andlegt, metið. Þeir sem nýta þjónustu Múlabæjar eru í mörgum tilfellum fólk sem sökum fötlunar eða skertrar hreyfifærni getur ekki komist ferða sinna á eigin spýtur eða nýtt sér almenningsfarartæki.

 

Síminn á Múlabæ er 568 1330. Fax: 568 3413.


Verkefni SÍBS

og Rauða kross

Íslands

   Hvað er í boði?

Netföng hjá SÍBS

Smellið á merkið:

       

Munið MedicAlert